25febrúar
mmmm.....ahh...*geisp*....shit hvað mér er illt í bakinu á að liggja svona lengi í einhverju rúmi......bíddu við........þetta er spítalarúm.......OMG....ég var í kóma!.....jei ég er vaknað!..*stendur upp og fangar*.... ég er VAKNAÐ!!!..UGHHH!! *hoppar í fagnaði og rekur sig í burðarbita og rennur aftur í kóma*
17nóvember
já þetta blogg er dautt eða allaveganna í kóma. Mun það vakna úr kómanu eða lifna við hver veit.
29september
ég var í stjörnuskoðun áðan út af borgarmyrkvanum. Eða ja´stjörnuskoðun. Ég sá eina stjörnu í smástund og svo hvarf hún. Sá ekki fleiri eftir það. Ég hafði ekki einu sinni fyrir því að líta í stjörnukíkji.
En já eitthvað annað........já ég er að fara í ökumat á morgun og er að reyna apð hugsa eins mikið og ég get um að víxla ekki höndunum á stýrinu í matinu. En hlýtur að ganga vel. Ef ekki þá þarft þú alltaf að vera á bíl þegar þú hittir mig;)
Er að vinna um helgina og er ekki með á planinu að fara í partý um helgina. Já ég veit þú ert að hugsa "Ha? er Hafsteinn djammkóngurinn, partýljónið sjálft ekki að fara að detta í það um helgina og berja útlendinga?" og svarið við því er þó skrýtið sé, "NEIBB".
Tjékkið á þessu myndbandi og hlustið á hláturinn í gaurnum. Besti hlátur í heimi:
http://www.youtube.com/watch?v=63yJxXfiIkYÆji ég er ekki að meika það að skrifa mikið meira er ennþá í sjokki eftir hvað stjörnuskoðunin var misheppnuð. Stærsta ský í heim var bara fyrir ofan okkur þar. Best að fara að gera eitthvað uppbyggilegt eins og að skrifa ritgerð eða bjarga heiminum eða slappa af og horfa þátt. Þú mátt velja einn af þessum möguleikum.
sjáumst!
Er að hlusta á: Smash Mouth - All Star
11september
Í dag er 11. september sem þýðir að það eru 5 ár síðan hryðjuverkaárásinar á Bandaríkin áttu sér stað svo ég ákvað að kíkja á netiðð og skoða eitthvað um þetta og ég fann þetta myndband hérna á youtube.com sem sýnir mann sem hét Kevin Cosgrove og var á 105. hæð þegar flugvél flaug inn í turninn sem hann var í(by the way, örugglega ekki fyrir viðkvæma):
http://www.youtube.com/watch?v=EE9TLgCVLBM
Svo er líka að finna nokkrar fríki tilviljanir eins og að Slayer gáfu út, þennann dag 2001, diskinn "God Hates Us All" og ef maður tekkur tvo síustu stafina í burtu er það "God Hates USA". Svo gáfu Dream Theater, líka á þessum degi, út diskinn "Live Scenes From New York" sem átti að vera upphaflega með þetta cover en því var breytt af skiljanlegum ástæðum:
.
Svo gáfu líka einhverjir rapparar út disk þar sem þeir voru risastórir yfir borginni og World Trade center að brenna man samt ekki allveg vað það hét.
Svo að lokum um 9-11 er hérna krípí trick með 20 dala seðil: http://www.funnyjunk.com/pages/twenty.htm
Og svona stutt um hvað er að gerast hjá mér:
- Kastaði helling af busum í loftið
- Varð blindfullur á busaballi og hegðaði mér í samræmi við það
- Var olnbogaður svona 4-5 sinnum yfir einni hryllingsmynd
- Fór í afmæli og fék afmælisgjöf frá afmælisbarninu
- Vann peningj í póker og vann á sunnudaginn
thats about it.
Tim Burton er að fara að leikstýra myndbandi með The Killers við lag sem heitir Bones og getur það ekki annað en komið vel´´ut. Hlakka til að sjá það.
"TWO KNOTS!"
Er að hlusta á: A Way Out - Dikta
boj!
28ágúst
Jójójó vott is öpp in ðe izzei......nei ég get ekki verið svartur.Á ekki nógu mikið bling-bling til þess.
Nú er ég víst byrjaður í skólanum og búinn að kaupa flestar bækur (sem voru grunsamlega miklu ódýrari en hin árin). Við fórum nokkur í afmæli tTim Burtons á föstudaginn og spiluðum morðingja í myrkri, Mao og póker með Risk-köllum. Fékk lðíka góða köku þar.:)
Fór svo í tvö önnur afmæli í gær. 19 ára afmæli Þóru í grafarvoginum og var þar í svona 3 tíma og síðann skrapp ég í 22 ára afmæli til Baldurs Ragnars sem var reyndar að nálgast endinn þegar ég kom. Hjá Baldri horfði ég á eina súrustu stuttmynd sem ég hef á ævinni minni séð. Var aðallega um Gústa G að tala í slow motion og Árna að borða pulsu og syngja. Samt geðveik mynd.
Svo var fjórða afmælið í dag en það var 93ja ára afmæli hans afa gamala góða. Helling af pönnukökum og tertum að græða þar.
Svo þetta hlýtur að vera met afmælishelgi hjá mér.
Ég var að heyra það að það væri verið að pæla í að leyfa fólki að skjóta litlu sætu kanínurnar í Öskjuhlíð því þær éta víst smá börk af trjánum þarna í hlíðinn . Myndi það ekki enda með að fólk myndi óvart skjóta blúndurklædda menn sem voru að hommast bakvið runna?
Bara að spá sko.
En já ég er að spá í að hætta með þessa færslu núna eða núna og núna eða núna........núna.
Bæ
Er að hlusta á: Q and not U - Soft Pyramids
...........núna
22ágúst
Já ég var í asíu fyrir viku og var þá búinn að vera þar í tvær vikur og ekki orðinn neitt mikið brúnn þótt það hafi verið 40 stiga hiti úti og égvar allveg nógu mikið úti. En þetta var bara gaman(utan við að fara á klósettið þarna. Endalaust djamm sem byrjaði venjulega með drykkjuleik og endaði með krot framan í sofandi(eða steinrotað af áfengisdauða). Svo fór maður á Flyfish og tvisvar á spíttbát(eða sped boat eins og stóð einhversstaðar). Fór einnig í tyrkneskt nudd sem var eitt af því þægilegasta sem ég hef gert, enda fór ég í þetta tvisvar. Eignaðist nokkra extra vini þarna úti og ferðin gekk bara nokkuð smooth með lítið af leiðindum. Ég var líka geðveikt harður síðasta daginn og fékk mér ekta tattú........já ekta þriggja vikna tattú sem er samt núna að mást af þó einungis ein vika sé liðin. Fékk mér "Lora 207" á hendina ásamt hinum fimm í Lora 207. Svo fékk ég mér lítinn sætann trúð með peace merkið í einni hendi og kjöthníf makaðann blóði í hinni. Já þetta var magnað.
Fékk trommusettið mitt á fimmtudaginn og var geðveikt happy með þaðn en frekar vonsvikinn þegar að ég mundi að ég gæti ekki mikið spreytt mig á það þar sem ég fór til Húsavíkur daginn eftir og var þar til í dag. Fínt að skreppa á víkina í norðri og sigla og sjá hvernig vinirnir hafa það.
Var að koma frá honum Eika og henni Helgu sem voru að flytja hingað suður í óttann og dópið eins og ég er alltaf á fullu í.......*hóst* ÉG og Eiki eyddum dágóðum tíma í að setja sama skrifborð saman, sem var ógó létt og skemmtilegt.......amooooj jú þetta var kannski skemmtilegt þar sem þetta var eitthvað svo misheppnað hjá okkur. En það leit bara hellvíti vel út í lokin. Helgi setti saman skrifborðsstól allveg ein *klapp* *klapp*
æji haldiði að ég ætli að skrifa fyrir ykkur endalaust. Ekki sjens! Ég er vinnandi maður á leiðinn eftur í nám á föstudaginn. Shtt hvað ég nenni samt ekki í vinnuna. oh jæja.
See you later, krokkódæl
Er að hlusta á: Sympathy - Billy Talent
"De Puta Madre"
23júlí
Já ég má ekki hætta með þetta. Verð að blogga, verð að blogga, verð að....zzzzzzzz....ah hvað er þetta?!
Hvað er búiða ð gerast uppá síðkastið. hmmmm
Ég var í póker í gær. við spiluðum í 5 og hálfann tíma held ég. og ég tapaði 2000 kjelli :( En þetta var samt fínt. Í heildina hef ég unnið meira.
Þar síðustu helgi komu einhver fífl að norðann og ég þurfti að hitta þau. Fór í tvolí með þeim og fór í tæki þar sem halldór mjaðma og axlabraut mig næstum því. átti erfitt með að anda með vinstra lunganu eftir það allaveganna. Svo fór ég í bollana með Silju og Melkorku með þeim afleiðngum að ég hálsbrotnaði næstum því og svo braut ég næstum hnéskelina í klessubílunum. En þetta var bara snilld.svo gerðum við fleiri túristalega hluti sem voru misskemmtilegir. oh já fór á see no evil með þeim og ella og sú mynd er, án gríns, næstum jafn brutal! og Hostel. Mæli með henni.
hmmm vika efitir af 18. árinu mínu. Hvað á maður að gera. Skreppa til Argentínu? Fljúga fokker- flugvél? finna BT-fjarsjóðinn? Leika í klámmynd? fara í sjómann við Arnold Schwarenegger? Eða bara vinna og borða og sofa og láta vikuna líða eins og venjulega viku.? Ég er nokkuð viss um að ég muni velja einhvern af þessum möguleikum. En hvern?!?!?
Djöfull er gaman að uppgötva aftur hlómsveitir. Er sko búinn að uppgötva aftur Billy Talent sem er bara góð hljómsveit og byrjaður að hlusta hellvíti mikið á Postal Service og Death Cab for Cutie. Mig lagnar í fleiri diska. Er hættur að nenna að hlusta á það sem er í diskamöppunni minni í bílnum. Nenni bara að hlusta á disk í svona 20 mín í senn.Maður verður aðfara að gera eitthvað í því.
Er búinn að updata vikunnar
Jei! 9 dagar í Tyrkland!
Er að hlusta á Soul Meets Body - Death Cab for Cutie
07júlí
Já, ég er orðinn svo latur núorðið. Hættur að nenna að blogga og vinna. Langar bara að liggja heima í rúminu og horfa á Quantum Leap eða Friends og hitt vini mína á kvöldin en nei ég þarf að vinna og svo þegar maður kemur hem þá er alltaf eitthvað sem þarf að gera. Skutla þessum kaupa ís fyrir þennann, taka til, ganga frá og fleira.
En mér er allveg sama því ég var að panta mér trommusett:)
Ég var að taka eftir því hvað það eru margir í vinnunni með skrýtin nöfn. T.d. Harvey, guar sem heitir Ásgrímur og kallaður Addi, Biering, Adolf, Ásvald, Styrmir og Kristov og bara einn þeirra er útlenskur! Ég er viss um að ég hafi verið valinn til að taka þátt í tilraun þar sem þeir safna samanfólki með skrýtin nöfn og taka einn með venjulegt nafn og gá hvort hann aðlagist. Það myndi útskýra myndavélarnar í loftinu.
ég borðaði pizzu áðan(bara láta Ernu vita því hún hefur svo gaman af því að lesa um hvað fólk borðaði)
ÆJi mig langar að gera eitthvað sniðugt eins og að labba á fjall eða sofa út. Ég skrifa næstum alltaf óvart lagnar í staðinn fyrir langar. var að leiðrétta setninguna á undan sko.
Ég var á msn um daginn þá þá skráði einhver stelpa sig á msn og við fórm að tla og hún sagðirst vinna við að redda giggum fyrir einhverja félagsmiðstöð. Hún sagði líka ða hun hefði verið að vinna m eð Bonnie Tyler í síðust viku og vikuna á undan með White Snake........Veistu hvað?........ekki allveg að kaupa það. En kannski líður henni etur ef hún þykist vera merkileg bigshot.
OK....vissuði að OK stendur líklegast fyrir latnesku orðin Oll Korrect eða grísku orðin Ola Kala. jáháhá maður lærir ýmislegt af wikipedia.
Þetta er komið gott held ég.
Er að hlusta á: No Quarter - Led Zeppelin
Verið hress, ekkert stress, bless
21júní
ég er að bloggar í vinnunni tíhíhíhíhíhí. Vinnu félagar mínir hérna treystu mér einum með lagerinn.....tíhíhíhí......
.................12 mínútum og 34 sekúndum seinna..........
"Eldur hefur brotist út í Pípulagnaverslun Húsasmiðjunar og ekki er víst hvort allir hafi komist út ennþá. Slökkviliðið er að reyna að hindra að eldurinn berist í næstu hús en það er augljóst að þessu húsi verður alls ekki bjargað. Talið er að eldurinn hafi byrjað á lagernum en ekki vitað hvernig ennþá. Vitni segja að fyrir um 10 mínútum þá hafi ungur maður í kringum tvítugt hlaupið út öskrandi og hlæjandi á víxl. VIð biðjum ykkur um að tilkynna lögreglunni ef þið sjáið þennann unga mann. Hann er skolhærður, klæddur gallabuxum og húsasmiðjuflíspeysu. Meira um málið á NFS klukkanl 18:30 í kvöld"
19júní
nei mjaðmir mínar ljúga ekki. Ég efni loforð mín og blogga hérna fyrir mánudag.
Þetta er búið að vera fínasta vika. Búinn að vera bara að vinna og meiða mig og slappa af eftir vinnu og klára O.C., sem er bögg því ég hef núna ekkert að horfa á. Uppástungur?
Eiki, Helga, Bjarni og Alda komu í bæinn og Eiki og Helga lentu í bílslysi á leiðinni hingað og rústuðu þannig bannaðaðkeyraframúrmerki. En voru samt nokkuð heil svo að ég hitti þau og við fórum í bíó og kíktum í svona 10 sek á tónleika. Fínt.
Svo í gær hélt ég lítið pókerpartý þar sem mér sýndust allir hafa gaman og ég græddi 1000 kall svo að mínu mati var þetta mjög vel heppnað. Ef þetta hefði verið strippóker þá hefði ég líklega grætt húfu:p. Hefði reyndar verið ánægðari ef Kibbi hefði mætt á staðinn en neeeei. Samt mjög sáttur.
Ég keypti mér miða á Belle og Sebastian tónleika sem ég fattaði í gær að væru í Borgafirði EYSTRA! en ekki Borgafirðinum sem allir þekkja. Ég vissi ekki einu sinni að það væri annar Borgafjörður. Þannig að ég er ekki viss um hvort ég muni nenna að fara á þá tónleika því það myndi þýða að ég þurfi að eyða afmælisdeginum í hemkeyrslu, sem er ekki beint draumafmælisdagurinn. Hef áður verið að keyra allann afmælisdaginn og það var ekki skemmtilegasti afmælisdagur í heimi vægast sagt.
Já þetta er orðið gott. Set inn nýtt vikunnar á morgun.
Er að hlusta á: Al's War - Less Than Jake
Bliza!